johannesproppe.bsky.social
@johannesproppe.bsky.social
Kristrún Frostadóttir þyrfti eiginlega að búa til nokkur ráðuneyti sem hljóma merkileg en geta í raun ekki gert neinn alvöru skaða. Ég held að það endi örugglega ódýrara fyrir þjóðarbúið en að hafa þingmenn FF í raunverulegum ráðherrastólum.
December 5, 2025 at 12:03 PM
Ég skil ekki afhverju meta er alltaf að sýna mér einhverja unhinged, sir-this-is-a-wendy's rantpósta á hinum og þessum spjallhópum.

Þarf ég að blokka allt helvítis landið til að geta fylgst með þessum 3-4 ættingjum og menntaskólakunningjum sem ennþá nenna að pósta þarna, í friði?
December 4, 2025 at 10:46 AM
Mikið held ég að það sé erfitt að reyna að halda ríkisstjórnarfund og svo er Flokkur fólksins eitthvað þarna að láta eins og krakki á háhesti, í frakkanum hans pabba að reyna að stelast inn á bannaða bíómynd
December 3, 2025 at 4:16 PM
Ýmir er frekar hljóðlátur hundur, lætur ekki mikið fyrir sér fara, öfugt við bróður sinn. Stundum minnir hann á sig með því að stara á mann undir skrifborði með krípí glóandi augunum sínum þangað til maður tekur eftir honum og hrekkur í kút.
December 3, 2025 at 1:32 PM
Í gær var afmælisveisla.
December 3, 2025 at 9:29 AM
Viðskiptaráð með vasa fulla af skattpeningum er svo innilega á pari við restina af íslenskum kapítalisma.
December 2, 2025 at 1:05 PM
Honum hefur ekki dottið í hug að vera bara aðeins minna pirrandi?
December 1, 2025 at 12:59 PM
Almennt er ég skeptískur á þetta AI rugl allt saman, en ef þetta er tæknin sem við þurfum til að fá útgáfu af Móðir með Bubba sem byrjar á "Melur hvar er skrjóður þinn?", þá er ég tilbúinn að endurskoða þessa afstöðu.
November 28, 2025 at 5:05 PM
Reposted
when I was young, i used to wonder how people like this would fare in life, as they didn't seem suited for gainful employment. it turns out, the internet allowed them to accumulate a massive audience of similar idiots, enriching them and turning them into a presidential advisor
November 20, 2025 at 12:58 AM
Ég tek þessari kvefpest af æðruleysi, öfugt við hundanna sem eru að brjálast á göngutúraleysinu.
November 13, 2025 at 3:55 PM
Það fer kannski heill dagur í að græja uxahala almennilega, en það er fátt sem gleður mig jafn mikið að éta
November 1, 2025 at 6:32 PM
Ég vildi að ég ætti vinkonu sem reddaði mér 160 milljón króna giggi að skreppa stundum út í búð, spjalla við Eygló og pæla í píluspjaldi.
October 28, 2025 at 9:23 PM
Næringafræðiáfanginn í matreiðslunáminu hefði auðvitað átt að heita Skammtafræði 103
October 21, 2025 at 11:35 AM
Það virðist vera töluverð fylgni milli þess að vera samsærisnöttari og að kunna ekki að setja upp íslenskt lyklaborð.
October 21, 2025 at 11:16 AM
Ég gæti aldrei skemmt mér í spilavíti. Ég er týpan sem kaupir lottómiða á margfaldan pott og er tapsár þegar ég vinn ekki.
October 19, 2025 at 10:13 AM
Í næstu sveitarstjórnarkosningum ætla ég ekki að pæla í bílastæðum, leikskólum eða þéttingu.
Ég ætla að kjósa hvern þann flokk sem setur bidet sem staðalbúnað í baðherbergi í byggingarreglugerðir.
October 15, 2025 at 2:47 PM
Mér fannst Laxness alltaf hundleiðinlegur, frábær í að beita tungumálinu en ég nennti ekki að lesa á milli línanna um einhverja upskáldaðar smásálir þegar það er ekki þverfótað fyrir þeim raunverulegum hérna.
October 9, 2025 at 10:12 PM
Nýja útgáfan væri að hæst bylji í vondum bluetooth
October 9, 2025 at 11:36 AM
Ef SUS hefði ályktað um að það ætti að tjá sig í bundnu máli hefði ég ekki fengið þennan aulahroll af því að lesa um hvað þeir eru miklir lúðar með skoðanir frá 1980
October 7, 2025 at 9:35 PM
Endurkoma Ali Baba stendur undir væntingum og vel það.
October 4, 2025 at 1:17 PM
Temu Charlie og smjörkúkathinktankarnir eru allir að frussa í brækurnar yfir nokkurhundruð miljónum í listamannalaun sem skila sér margfalt til baka, en minnast ekki orði á milljarða í sóknargjöldin sem kirkjan vill hækka um 60%.

Hvernig nenna þeir alltaf að vera með svona shit takes á öllu?
October 3, 2025 at 3:19 PM
Við flugum heim fyrir helgi, pabbi og mamma aftur á móti hafa núna fína afsökun til að gerast formlega ellilífeyrisþegar á tene.
September 29, 2025 at 9:57 AM
Reposted
not true
September 27, 2025 at 1:46 AM
Á þessu hótelhlaðborði eru einstaka spænskir réttir sem eru virkilega góðir, en restin er óttalega bresk og matreitt eins og þau séu ennþá sár yfir Trafalgar.
September 23, 2025 at 6:13 PM
Það ætti að vera áfangi á fyrsta ári í menntaskóla þar sem farið er yfir öll skiptin sem Sjálfstæðisflokkurinn kosningalýgur því að setja vín í búðir og lækka áfengiskaupaaldurinn niður í 18
September 23, 2025 at 2:59 PM