ég elska að ætla að gera eitthvað í vinnunni en enda svo á því að slást við microsoft forritin góðu í staðinn, það er frábært og ég kann fjármálaráðuneytinu miklar þakkir fyrir að hafa gert samning við bill gates og félaga, virkilega snjallt
ég er alltaf að reyna en mér tekst aldrei að fíla ekki nba youngboy, hann er bara alltaf að gera eitthvað geggjað og gera mig að steríótýpunni white guy á internetinu sem dýrkar nba youngboy
ég keypti mér loose fit slacks úr ull og bjóst við að líta út eins og fágaður yet street fræðimaður í þeim en ég lít eiginlega bara út eins og skandinavísk gella í Copenhagen business school árið 2018
það versta í amerískum krossgátum, vísbendingar og svör: aloe, oreo, "pt. of X", skammstafanir háskóla, American Dental Association, hafnabolti, IRA (einhver sjóður), brelluspurning þar sem svarið getur verið CIA eða NSA, erlend orð ("summer in madrid" svarið er sumar á spænsku)
það sem er pirrandi við að borða lísdexamfetamín á morgnanna er að svo mætir maður í vinnunna og eyðir þremur klukkutímum straight í að skrifa eitthvað minnisblað sem skiptir varla neinu máli og er svo andlega uppgefinn það sem eftir er dags og kemur engu í verk
ég man að þegar systur mínar rifust á tíunda áratugnum þá var orðið "meri" oft notað, þarf ekki að nota það meira í dag? "helvítis merin þín" hljómar eitthvað svo vel
this guy is so profoundly stupid it has kinda gone full circle for me, I kind of like him now. to me he's this innocent naive guy that has been clockwork oranged with a constant barrage of podcast-manosphere-bitcoin-elon musk bullshit and now we watch him trying to find any meaning in the real world
ég var að fá nýjan síma og mikið að pæla í hvað snjallsímar voru svakalega cutting edge einu sinni, fólk að horfa á apple kynninguna live eins og úrslitakeppni í íþrótt en núna er munurinn á iphone 12 og 16 nánast enginn
ég er búinn að lesa margar bækur nýlega þar sem einhver lognast útaf og vaknar í rúmi einhversstaðar og segir “hvar er ég”, langt síðan að maður hefur lent í því sjálfur
facebook feedið mitt er alltaf að birta grúppuna point and click adventures og þetta er svo geggjaður hópur, einhverjir kallar að tala um point and click leiki í mjög löngu máli og af þvílíkri ástríðu, love it (ég var að joina loksins núna)