emilía dögg 🌙
banner
hvitur.monster
emilía dögg 🌙
@hvitur.monster
terminally gay
hún / she / her 🗑️🏳️‍⚧️✨

🦴💕
🐇💕
hann er bara að sníkja nammi, þetta er eðlilegt
August 11, 2025 at 5:17 PM
ég hef aðeins verið að ströggla með hugsanir hvort ég passi yfirhöfuð inn í hinsegin samfélagið, þá sérstaklega trans samfélagið, en það var mjög fínt að sjá eitthvað af fólkinu sem ég þekki í gær 🥹
August 10, 2025 at 10:07 AM
ough, það var heilmikil ögrun að þora fara út í gær að fylgjast með göngunni og ég er svo sannarlega að borga fyrir það í dag

mig verkjar allstaðar
August 10, 2025 at 10:03 AM
ég bað Möru að kaupa Pepsi Max en hún keypti Pepsi Switzerland. þetta er alveg fínt samt
August 10, 2025 at 12:01 AM
það á ekkert annað búðarkex séns, allt við þetta kex er fullkomið (fyrir utan að það er asnalega dýrt)
July 20, 2025 at 7:03 PM
núna er ég ekki professional kexsmakkari en ég hef prufað ýmis kex og bakað ýmis kex sjálf, og að ég get sagt það fullviss að TimTam er besta kexið
July 20, 2025 at 7:01 PM
Reposted by emilía dögg 🌙
Please… for the love of god, just stop reading Harry Potter. There are other god damn fantasy series out there, and ones that don’t give money and attention to a person helping to directly harm trans people.
i swear at god. I got an email advertising this an hour ago.

@humblebundle.com a disclaimer saying that the charity was "not involved in the selection of the content in this promotion" and that the content "do[es] not reflect or represent the views and opinions" doesn't absolve you of anything
July 20, 2025 at 9:39 AM
það er svo fáránlegt, þetta er eins og kerfið var hannað til að tæknilega séð tikka í öll boxin upp á þjónustu en sett upp á hátt sem gagnast eins fáu fólki og mögulegt er
July 19, 2025 at 4:46 PM
úú, ég skal tjékka á þessu, takk fyrir upplýsingarnar!
July 19, 2025 at 4:40 PM
meirihluti fólks er að festast á leigumarkaði og þ.a.l. er fast á vinnumarkaði, sérstaklega þar sem bætur geta ekki dekkað leigu og framfærslu í dag

ég hugsa um fólkið sem kerfið er að grípa og allt fólkið sem er skilið eftir...
July 19, 2025 at 4:14 PM
almenningskerfið er tæknilega séð til en það fylgir aldrei sögunni hvað það er gríðarlega erfitt fyrir fólk að komast þarna að og að það er ekki mögulegt fyrir fólk að sækja þessa þjónustu samhliða vinnu
July 19, 2025 at 4:07 PM
það er merkilegt hvað það er mikil stéttaskipting í geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi, ég er mjög privileged að geta átt efni á því en það hefði ekki verið séns þegar ég var á lægri launum

ég hugsa reglulega um þegar ég sótti um hjá HH Vestur og það var regla að þú máttir ekki vera í fullu starfi
July 19, 2025 at 4:05 PM
oop, vissi ekki þetta með sjúkdómana og verkina en það útskýrir margt!
July 19, 2025 at 3:54 PM
það er svo ósanngjarnt að tími læknar alls ekki öll sár. hvað meinarðu að ég þurfi að vinna í áföllunum mínum án þess að hunsa þau??
July 19, 2025 at 2:27 AM
ég er búin að vera föst að spila Warhammer 40K Rogue Trader og ég er byrjuð að hafa smá áhyggjur að ég sé að fara breytast í full-blown WH40K nörd

plís ég er nógu mikil stereótýpa núþegar
July 19, 2025 at 2:24 AM
mér finnst að ef þú mætir á vitlausum tíma til geðlæknis sem er að vinna í ADHD greiningunni þinni þá ætti það bara að vera nóg til að staðfesta greininguna
July 18, 2025 at 1:25 PM
deconstruction er mjög heitt í matarmenningu þessa dagana
July 18, 2025 at 12:50 PM
þetta væri svo miklu auðveldara ef það væri hægt að sameina öll sveitarfélögin í nýja borg: Gullbringa
July 18, 2025 at 12:44 PM
þetta ýtir svo mikið undir mína upplifðu félagslegu og samfélagslegu einangrun

partur af mér hugsar að þessi hræðsla mín við annað fólk er bara ég og hausinn minn, en svo virðist ég ekki geta farið í bíó án þess að vera aðhlátursefni
fór að sjá Superman, alveg frekar góð mynd, uppáhalds parturinn minn var þegar ég var hatecrimed af hóp af unglingum þegar ég var að labba út í bíl eftir myndina
July 17, 2025 at 2:07 AM
fór að sjá Superman, alveg frekar góð mynd, uppáhalds parturinn minn var þegar ég var hatecrimed af hóp af unglingum þegar ég var að labba út í bíl eftir myndina
July 16, 2025 at 10:48 PM
plöntur endurspegla eigandann eins og þau segja
July 16, 2025 at 6:51 PM
ég var beðin um að vökva basilíkuna einu sinni
July 16, 2025 at 6:04 PM
ég hef verið að spá í hvað ég ætla að segja samstarfsfólki mínu þegar það spyr mig hvort ég gerði eitthvað skemmtilegt í sumarfríinu mínu

svarið er nei, ég skipti um geðlyf og lá upp í rúmi í 3 vikur, en spurning hvort ég ætti bara að segja þeim að ég fór á Tene eða eitthvað
July 16, 2025 at 11:33 AM
kerfið in this case verandi geðheilbrigðisþjónusta
July 12, 2025 at 5:37 PM