Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
banner
rakeldur.bsky.social
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
@rakeldur.bsky.social
Allt um 18. öldina.
Brúnar myndir af brúnu hrafnasparki.
Ég vinn hjá Þjóðskjalasafni Íslands að útgáfu Yfirrréttarins á Íslandi, tíu binda ritröð sem spannar öll dómsmál Yfirréttarins frá 1690-1800.
Nú fyrst er Sveinn á sparifötunum. Loksins kom skjal með innsiglinu hans, tveimur hvæsandi snákum sem mynda upphafsstafi hans SS.

Þetta innsigli er klárlega helsta ástæða þess að ég tók ástfóstri við Svein Sölvason þegar ég byrjaði í þessari vinnu 2020.

#SveinnSölvason
December 10, 2025 at 1:38 PM
„... og kan ikke undlade at give ham et lidet reisepass.“

Sveinn Sölvason sendir stiftamtmanni í Danmörku hrút haustið 1754 og getur ekki stillt sig um að gefa út fyrir hann lítið vegabréf.

#SveinnSölvason
December 10, 2025 at 11:19 AM
... tout contrair ...

Björn Markússon (1716-1791) slær um sig með frönsku.
December 9, 2025 at 3:37 PM
... der er at fare over saa mange ödefielder og fleer...

Dómarr í embættisaflöpum Hans Wium í #Sunnefumáli afsaka seinagang sinn með því að málið sé úr hinni ómögulegu Múlasýslu, svona nokkurn veginn.
December 9, 2025 at 3:01 PM
Sveinn Sölvason á náttfötunum:
December 9, 2025 at 11:07 AM
Sveinn Sölvason á sparifötunum:
December 9, 2025 at 11:06 AM
1/
Herra commissarii vildu gefa sér stund að considerera, að jafnvel þó sýslumaður væri hennar virkilegur barnsfaðir, hvört það var mögulega af henni að prætendera og væntanlegt að hún, svo langt frá öllum landsins háyfirvöldum, ...

#Sunnefumál #PéturÞorsteinsson
December 8, 2025 at 3:05 PM
Og talandi um umslagsbrot, þá lítur bakhliðin á þessu kvikindi svona út:
December 8, 2025 at 1:15 PM
Þetta sendi hann tveimur árum áður, 1744. Þetta er ekki eðlilega skítugt. Og varla er þetta tilviljun, tvö drusluleg bréf með tveggja ára millibili.
December 8, 2025 at 1:14 PM
Í öskjunni lögmannsbréf til stiftamtmanns hef ég fundið tvö bréf frá hinum alræmda landfógeta Christian Drese. Drese var af dómhörðum manni sagður drykkfelldasti embættismaður Íslands um miðja 18. öld.

Hvort sem það er tilviljun eða ekki eru bæði bréfin hans mjög sjúskuð og því næst ólæsileg.
December 8, 2025 at 1:04 PM
Umslagsbrotin í bréfunum eru alltaf svolítið sjarmerandi.

Höyædle og velbaarne hr. Hendrich Ochsen, kongl. Mayts höybetroede stiftbefalingsmand oveer Island og Færöe, samt etatz-, justitz- og cancellieraad, underdanigst a Kiöbenhafn.
December 8, 2025 at 11:02 AM
„Þá þar sem, að ég get frelsað saklausa manneskju frá dauðanum, og að sá fátæki svo vel geti notið réttar sem hinn ríki, læt ég yður hér með vita, að ég vil sjálfur úr mínu eigin veski borga yður 10 ríkisdali fyrir ferð yðar og athafnir í málinu.“
(mín þýðing)

#Sunnefumál #JóakimLafrentz
December 5, 2025 at 12:59 PM
Lengi hefur Þjóðskjalasafn velt því fyrir sér hvernig sé best að ná til almennings með fræðslu og kynningu á starfsseminni, hvaða efni kveiki mest í fólki.

Svarið er nú loksins fundið og það felst í pödduklessum frá 18. öld.
December 5, 2025 at 9:33 AM
„2de söskene ved navn Jon Jonsson og Sunnefa Jonsdatter fra Muhlesyssel ere udj lejeermaal og blodskam med hin anden udi aret 1739 befunden“

Önnur (þriðja?) tilraun til þess að hefja heimildaleit í #Sunnefumál

(og já, við skrifum alla dönsku upp stafrétt en ekki orðrétt eins og íslenskuna. Sorrí)
December 3, 2025 at 2:28 PM
Þetta er svo hrikalega fyndinn titill (og ekki síðra nafnið á 18. aldar píetistanum sem tilvitnunin er fenginn í. Donysius Piper!)
December 3, 2025 at 9:47 AM
„Execution er hér og nýlega afstaðin, tveir þjófar hengdir! (Hvað sem á eftir kemur). En það voru tveir útlenzkir Kragar uppfestir í silkisnúrum. Fyrir það þeir voru útlenzkir hlaut það að gerast með distinction.“

Stay classy, Þorsteinn Magnússon.
November 25, 2025 at 1:46 PM
Ég ákvað að fyrsta skrefið í heimildaleit í Sunnefumálinu væri að taka til í gömlu word skjölunum frá tíunda áratugnum um aukalögþing. Sú hálf-stofnun, aukalögþingin, var stofnuð vegna þjófnaðaröldu á landinu í kjölfar hungursneyðar.

Er að reyna að gera prótó-efnisyfirlit og ég ER AÐ DRUKKNA.
November 25, 2025 at 1:28 PM
Kápa utan um afrit af kafla í Norsku lögum (???) frá 1744. Mjög óvenjulegt, ég hef sent fyrirspurn á forvörð Þjóðskjalasafns.
November 25, 2025 at 10:38 AM
„Farðu út og hjálpaðu til að skrifa undir protocollen“

Dómskerfi 18. aldar var að breytast úr samfélagsstarfi í sjálfboðavinnu yfir í atvinnu sem krafðist sérþekkingar.

8 bændur úr nágrenninu áttu ýmist að votta dóm sýslumanns eða dæma með honum. Þetta átti að veita aðhald og tryggja réttlæti.
November 21, 2025 at 1:59 PM
2/2
En nei ó nei. Mér hefur verið kastað heil þrjú ár fram í tímann, til ársins 1758, þar sem bíður mín heimildaleit í landdregnasta og flóknasta dómsmáli 18. aldar: Sunnefumálinu.

Þráhyggjuvöðvi heilans er orðinn dálítið þreyttur.
November 21, 2025 at 9:58 AM
Tadaa! Fann bókstaflega eintak yfirréttar af málsskjali D. Er nú uppfull af hæfilegri andakt yfir varðveislu sögunnar.

„Upplesið underdanigst í yfirréttinum d. 14da Julii 1756. Test(era)r Davíð Schieving. Lit. D.“
November 18, 2025 at 1:30 PM
Ég veit að þarna hlýtur bara að standa Friderich. Ikke? En heilinn í mér vill ekkert annað sjá þarna en:

ESPRESSO
November 18, 2025 at 11:27 AM
3. júní 1756. Stiftamtmaður biður amtmann um að senda nokkra íslenska hunda, stóra og litla, með næsta skipi, að bón konungs.
November 17, 2025 at 3:03 PM
Síðasti dagurinn í öskjuskimun fyrir embættismissi Erlends Ólafssonar. Þorgeir Markússon fær mildun á þeim dómi prestastefnu að hann skuli missa (ég get svo svarið það) hönd og æru.
November 17, 2025 at 2:04 PM
1722 var hann sagður hafa stolið áður, fyrir þremur árum, 1719. En nota bene ekkert sagt um dóm svo kannski var hann ekki orðinn 15 ára þá?

Allavega, þetta er sá fjölskyldufaðir með nafninu Bjarni sem er næstur Fljótshlíð í upphafi 18. aldar, þar sem Guðmundur sagðist hana verið fæddur.
November 14, 2025 at 11:42 AM